Gunnar í Fagráð

  • 3. desember 2012
  • Fréttir
Gunnar í Fagráð

Á aðalfundi Félags tamningamanna sl. föstudag var Gunnar Arnarsson kjörinn til að sitja í Fagráði í hrossarækt fyrir hönd félagsins næstu þrjú árin.

Fram til þessa hefur formaður FT setið í Fagráði, nú verður breyting þar á. Kosið var á milli þeirra  Sigrúnar Ólafsdóttur formanns FT og Gunnars Arnarsonar, þar hafði Gunnar betur.  Stjórn FT var í framhaldinu falið að tilnefna Gunnar sem fulltrúa félagsins í Fagráð.
 
Gunnar hefur í opinberri umræðu haft skoðun á störfum Fagráðs, á köflum deilt hart á störf þess.
Það má telja líklegt að fengur sé að Gunnari til verka í Fagráði, hann hefur náð frábærum árangri sem hrossarætandi á undanförnum árum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link