Gústaf Ásgeir á toppinn í unglingaflokki
Nokkrar breytingar urðu á efstu keppendum í unglingaflokki eftir milliriðil sem fram fór í morgun. Gústaf Ásgeir Hinriksson, hjá hestamannafélaginu Fáki, skellti sér á toppinn með glæsilegri sýningu á Naski frá Búlandi. Jóhanna Margrét Snorradóttir, hjá hestamannafélaginu Mána, sýndi hinn 17 vetra gamla Bruna frá Hafsteinsstöðum af miklu öryggi og uppskar 8,48 í einkunn og annað sæti. Birgitta Bjarnadóttir hjá hestamannafélaginu Geysi á hestinum Blika frá Hjallanesi 1, hlaut einkunnina 8,47 og skaust þannig upp fyrir félaga sinn hjá Geysi Róbert Bergmann og Brynju frá Bakkakoti, en þau eru nú í fjórða sæti.
Meðfylgjandi eru úrslit milliriðla, en 7 efstu keppendur hafa nú tryggt sér þátttökurétt í A-úrslitum en keppendur í sætum 8-15 munu etja kappi um lokasætið í A-úrslitum í B-úrslitum sem fara fram á föstudag kl. 15.45.
1 Gústaf Ásgeir Hinriksson / Naskur frá Búlandi 8,57
2 Jóhanna Margrét Snorradóttir / Bruni frá Hafsteinsstöðum 8,48
3 Birgitta Bjarnadóttir / Blika frá Hjallanesi 1 8,47
4 Róbert Bergmann / Brynja frá Bakkakoti 8,45
5 Ragnar Þorri Vignisson / Klængur frá Skálakoti 8,40
6 Klara Sveinbjörnsdóttir / Óskar frá Hafragili 8,39
7 Birna Ósk Ólafsdóttir / Kolbeinn frá Sauðárkróki 8,39
8 Anna Kristín Friðriksdóttir / Glaður frá Grund 8,38
9 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir / Alvar frá Nýjabæ 8,37
10 Valdís Björk Guðmundsdóttir / Hrefna frá Dallandi 8,36
11 Arnór Dan Kristinsson / Þytur frá Oddgeirshólum 8,34
12 Glódís Helgadóttir / Geisli frá Möðrufelli 8,33
13 Finnur Ingi Sölvason / Glanni frá Reykjavík 8,28
14 Súsanna Katarína Guðmundsdóttir / Hyllir frá Hvítárholti 8,27
15 Nína María Hauksdóttir / Ófeigur frá Syðri-Ingveldarstöðum 8,26
16 Dagbjört Hjaltadóttir / Gnýr frá Ferjukoti 8,25
17 Steinunn Elva Jónsdóttir / Losti frá Kálfholti 8,25
18 Dagmar Öder Einarsdóttir / Glódís frá Halakoti 8,25
19 Ragnar Bragi Sveinsson / Loftfari frá Laugavöllum 8,22
20 Svandís Lilja Stefánsdóttir / Brjánn frá Eystra-Súlunesi I 8,21
21 Elín Magnea Björnsdóttir / Stefnir frá Hofsstaðaseli 8,21
22 Hafdís Arna Sigurðardóttir / Sólon frá Lækjarbakka 8,18
23 Sóley Þórsdóttir / Stilkur frá Höfðabakka 8,15
24 Steindóra Ólöf Haraldsdóttir / Gustur frá Nautabúi 8,14
25-26 Brynja Kristinsdóttir / Tryggvi Geir frá Steinnesi 8,12
25-26 Díana Kristín Sigmarsdóttir / Fífill frá Hávarðarkoti 8,12
27 Guðrún Alexandra Tryggvadóttir / Alda frá Varmalæk 8,07
28 Katarína Ingimarsdóttir / Birkir frá Fjalli 8,04
29 Hulda Kolbeinsdóttir / Nemi frá Grafarkoti 7,94
30 Steinunn Arinbjarnardótti / Korkur frá Þúfum 7,86
31 Alexandra Ýr Kolbeins / Lyfting frá Skrúð 7,64
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH