Háar einkunnir þarf til þess að eiga þátttökurétt á Landssýningu
Fold frá Flagbjarnarholti er efst í flokki sjö vetra hryssa að svo stöddu. Knapi: Ævar Örn Guðjónsson mynd:Þórunn Hannesdóttir
Landssýning kynbótahrossa fer fram laugardaginn 27.júní á Rangárbökkum við Hellu. Þátttökurétt í sýningunni eiga tíu hæst dæmdu kynbótahross vorsins í öllum flokkum hryssna og stóðhesta, alls 80 bestu hross landsins. Hrossin verða kynnt ítarlega og verðlaunuð á grunni dóma vorsins.
Á Landssýningunni verða einnig afkvæmasýningar stóðhesta til 1.verðlauna fyrir afkvæmi og einnig til heiðursverðlauna.
Landssýningin verður í beinni útsendingu á þremur tungumálum hér á vef Eiðfaxa. Það er Félag Hrossabænda, RML og Horses of Iceland sem standa einnig að landssýningunni.
Nú er tveimur vikum í sýningum lokið og hafa alls 368 hross verið sýnd í fullnaðardómi. Spennan eykst um hvaða hross það eru sem komast á Landssýninguna og fá þannig kynningu um gjörvalla veröld í gegnum streymi auk þess að vera verðlaunuð.
Á morgun, mánudag, hefjast sýningar á fjórum stöðum en það er í Víðidal, á Hellu, Hólum og á Sörlastöðum og eftir þá viku verður ljóst hvaða hross mæta á Landssýninguna.
Við minnum eigendur kynbótahrossa að þeir geta tryggt sér myndband af sínu hrossi í kynbótadómi með því að senda email á [email protected] þar sem fram kemur nafn viðkomandi stóðhests eða hryssu og hvar hún var sýnd. Myndbandið kostar 15.000 + vsk en það er í bestu hugsanlegu gæðum og sáu fremstu fagmenn í faginu um upptöku á hverjum sýningarstað.
Stöðulistar í öllum aldursflokkum
| Stóðhestar 7.vetra og eldri | |
| Nafn | Aðaleinkunn |
| Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum | 8,94 |
| Rauðskeggur frá Kjarnholtum | 8.87 |
| Vegur frá Kagaðarhóli | 8,81 |
| Jökull frá Breiðholti í Flóa | 8,81 |
| Þór frá Torfunesi | 8,73 |
| Arthúr frá Baldurshaga | 8,69 |
| Skuggi frá Skagaströnd | 8,65 |
| Rjóður frá Hofi á Höfðaströnd | 8,62 |
| Hafliði frá Bjarkarey | 8,62 |
| Dropi frá Kirkjubæ | 8,60 |
| Stóðhestar 6.vetra | |
| Nafn | Aðaleinkunn |
| Viðar frá Skör | 8,89 |
| Eldjárn frá Skipaskaga | 8,72 |
| Tumi frá Jarðbrú | 8,61 |
| Þristur frá Tungu | 8,54 |
| Sölvi frá Stuðlum | 8,52 |
| Styrkur frá Leysingjastöðum II | 8,50 |
| Hjörvar frá Rauðalæk | 8,46 |
| Bassi frá Sólheimum | 8,44 |
| Sindri frá Syðra-Velli | 8,43 |
| Goði frá Bjarnastöðum | 8,40 |
| Stóðhestar 5.vetra | |
| Nafn | Aðaleinkunn |
| Leynir frá Garðshorni á Þelamörk | 8,77 |
| Atli frá Efri-Fitjum | 8,54 |
| Hávaði frá Haukholtum | 8,45 |
| Seðill frá Árbæ | 8,44 |
| Hannibal frá Þúfum | 8,43 |
| Kunningi frá Hofi | 8,39 |
| Pensill frá Hvolsvelli | 8,38 |
| Hervar frá Innri-Skeljabrekku | 8,36 |
| Kraftur frá Eystra-Fróðholti | 8,35 |
| Hilmir frá Hamarsey | 8,35 |
| Stóðhestar 4.vetra | |
| Nafn | Aðaleinkunn |
| Gjafar frá Efri-Fitjum | 8,21 |
| Magni frá Stuðlum | 8,18 |
| Töfri frá Þúfum | 8,18 |
| Hlýr frá Garðshorni á Þelamörk | 8,13 |
| Blæsir frá Hægindi | 8,10 |
| Goði frá Oddgeirshólum 4 | 8,07 |
| Sólfaxi frá Herríðarhóli | 8,05 |
| Óríon frá Strandarhöfði | 8,05 |
| Börkur frá Fákshólum | 8,04 |
| Dagur frá Austurási | 8,03 |
| Hryssur 7.vetra og eldri | |
| Nafn | Aðaleinkunn |
| Fold frá Flagbjarnarholti | 8,73 |
| Hremmsa frá Álftagerði III | 8,68 |
| Hrönn frá Ragnheiðarstöðum | 8,59 |
| Hylling frá Akureyri | 8,55 |
| Næla frá Lækjarbrekku 2 | 8,53 |
| Gefn frá Feti | 8,47 |
| Stjörnuspá frá Þúfum | 8,45 |
| Mardöll frá Hryggstekk | 8,39 |
| Skálmöld frá Þúfum | 8,38 |
| Sif frá Eystra-Fróðholti | 8,38 |
| Hryssur 6.vetra | |
| Nafn | Aðaleinkunn |
| Askja frá Efstu-Grund | 8,62 |
| Þrá frá Prestsbæ | 8,59 |
| Svarta-Perla frá Álfhólum | 8,54 |
| Mirra frá Tjarnastöðum | 8,51 |
| Fjöður frá Flagbjarnarholti | 8,46 |
| Hávör frá Ragnheiðarstöðum | 8,46 |
| Polli frá Mið-Fossum | 8,39 |
| Hjör frá Völlum | 8,37 |
| Bryðja frá Barkarstöðum | 8,36 |
| Lokbrá frá Hafsteinsstöðum | 8,35 |
| Hryssur 5.vetra | |
| Nafn | Aðaleinkunn |
| Álfamær frá Prestsbæ | 8,55 |
| Lydía frá Eystri-Hól | 8,46 |
| Dimma frá Hjarðartúni | 8,38 |
| Dimma frá Efsta-Seli | 8,37 |
| Hreyfing frá Akureyri | 8,32 |
| Hrund frá Efsta-Seli | 8,31 |
| Dússý frá Vakurstöðum | 8,30 |
| Fiðla frá Seljatungu | 8,21 |
| Skálmöld frá Miðfelli 2 | 8,18 |
| Happadís frá Strandarhöfði | 8,13 |
| Hryssur 4.vetra | |
| Nafn | Aðaleinkunn |
| Drift frá Austurási | 8,24 |
| Díva frá Austurási | 8,13 |
| Einstök frá Hvanneyri | 8,12 |
| Halldóra frá Hólaborg | 8,08 |
| Vala frá Hjarðartúni | 8,07 |
| Dögun frá Austurási | 8,05 |
| Rás frá Hólaborg | 8,05 |
| Valdís frá Auðsholtshjáleigu | 8,03 |
| Dagný frá Austurási | 8,02 |
| Flugsvinn frá Ytra-Dalsgerði | 8,01 |
| Fiðla frá Flagbjarnarholti | 8,01 |
Styttu haustið með EiðfaxaTV