Hádegisfyrirlestur um þróun kappreiða

  • 30. apríl 2024
  • Fréttir
Útbreiðslu- og nýliðunarnefnd LH stendur fyrir hádegisfyrirlestrum

Útbreiðslu- og nýliðunarnefnd Landssambands hestamannafélaga stendur fyrir hádegisfyrirlestrum sem munu fara fram á Teams um ýmislegt áhugavert og fræðandi í tengslum við hestamennsku.

Fyrirlestrarnir eru stuttir eða um 30 -45 mínútur og gefinn er kostur á spurningum á þeim loknum. Aðgangur er ókeypis.

Fyrsti fyrirlesturinn fer fram mánudaginn 6. maí kl 12:00 en hann mun fjalla um þróun kappreiða hér á landi. Sigurbjörn Bárðarson flytur erindið. Tengill á fyrirlesturinn verður birtur á facebook síðu LH að morgni mánudags.

Aðrir væntanlegir fyrirlestrar eru:
  • Hestaljósmyndun með Gígju Einars
  • Undirbúningur hestaferða með Hermanni Árnasyni
  • Trec þjálfun og keppni með Önnu Sonju Ágústsdóttur
  • Hestanudd með Merle Storm

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar