Hæfileikaríkir hestamenn

  • 5. mars 2012
  • Fréttir
Hæfileikaríkir hestamenn

Morgunblaðið stendur að Hæfileikakeppni Íslands sem fer fram á heimasíðunni mbl.is. Felst leikurinn í að þátttakendur geta sent inn myndband sem sýnir tilþrif að einhverju tagi og hafa hestamenn verið nokkuð iðnir við að sýna listir sína og fákanna.

Kristinn Hákonarson lætur hest sinn leggjast af miklu fumleysi og stjórnar honum án nokkurra reiðtyga.

Hekla Hermundsdóttir sippar á hestbaki og lætur pollrólegan reiðskjóta sinn hlaupa upp í hestakerru á ferð.

Ester Hilmars lætur hest sinn prjóna, leggjast, brosa, dansa og taka spænska sporið af mikilli list.

Þá bergður hestakonan góðkunna Sigríður Pjetursdóttir undir sig betri fætinum og syngur af hjartans list.

Hestamenn eru að sönnu hæfileikarík þjóðfélagsstétt!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link