Hæmir hæst dæmda hrossið í Herning
Kynbótasýning í Herning í Danmörku fór fram nú helgina og lauk í gær á yfirlitssýningu. Alls voru dæmd 56 hross og þar af 23 eingöngu í sköpulagsdómi. Alls hlutu 11 þeirra aðaleinkunn yfir 8,00 og 1.verðlaun.
Hæst dæmda hross sýningarinnar er sex vetra gamall stóðhestur er heitir Hæmir fra Hyldsbæk, brúnn að lit undan Grími frá Efsta-Seli og Heilladís frá Grímsstöðum. Ræktandi hans er Susanne Fibiger sem er eigandi ásamt Stald Gavnholt v/ Agnar Snorri Stefánsson. Sýnandi hans var Anne Stine Haugen.
Fyrir sköpulag hlaut Hæmir hvorki meira né minna en 8,76 og þar af hina sjaldgæfu einkunn 9,5 fyrir háls, herðar og bóga. Hann er því einn af átta lifandi stóðhestum sem skarta þeirri einkunn. Þá hlaut hann 9,0 fyrir samræmi og prúðleika. Fyrir hæfileika hlaut hann 8,18 og í aðaleinkunn 8,39.
Þá kom fram í herning áhugaverður fjögurra vetra gamall stóðhestur er heitir Hraði fra Skovhuset, en hann er undan Feyki frá Háholti og Særúnu frá Sauðárkróki. Fyrir sköpulag hlaut hann 8,21 þar sem hæst ber einkunnin 9,0 fyrir hófa. Fyrir hæfileika hlaut hann 8,31 þar af 9,0 fyrir greitt stökk. Ræktendur Hraða eru Sven-Jørn Guul og Vivi Guul en það var Soren Madsen sem sýndi hann.
Sýnd hross raðað eftir aðaleinkunn