Hæst dæmda litförótta hryssa ársins
Litbrá frá Langhúsum er hæst dæmda litförótta hryssa ársins en þetta kemur fram í frétt frá Hrossaræktarsamtökum suðurlands sem birtist á síðu þeirra í morgun.
Litbrá er brúnlitförótt hryssa fædd árið 2013.
Ræktandi hennar og eigandi er Arnþrúður Heimisdóttir í Langhúsum í Fljótum.
Sýnandi og þjálfari Litbrár var Þórhallur Rúnar Þorvaldsson á Ysta-Gerði.
Litbrá er undan Sjóði frá Kirkjubæ, brúnum Sæssyni fæddum 2007 og undan Þyrnirósu frá Kirkjubæ Hróðsdóttur. Það er því ljóst að Litbrá hefur ekki litföróttar erfðir úr föðurættinni.
Svo er Litbrá undan Hersingu frá Langhúsum, brúnlitföróttri skjóttri hryssu fæddri 2005.
Móðir Hersingar er Harpa frá Neðri-Hrepp, sem var rauðskjótt hryssa, Hervarsdóttir og af hinu vel kunna Kleifakyni í móðurætt.
Faðir Hersingar er Heimir frá Vatnsleysu, brúnlitföróttur Glampasonur f. 1999.
Áður hafa hlotið þennan bikar hryssurnar:
Gleði frá Lækjardal bleikálótt litförótt hryssa fædd 2007
Maja frá Búðardal jarplitförótt hryssa fædd 2009 – tvisvar sinnum
Úlfhildur frá Skíðkakka III jarplitförótt hryssa fædd 2011
Einstök frá Skíðbakka III móvindótt litförótt hryssa fædd 2013 – tvisvar sinnum
Og núna sumarið 2020 vann hryssan Litbrá frá Langhúsum til bikarsins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH