Hafnarfjarðarmeistaramót Sörla
Hið árlega Hafnarfjarðarmeistarmót Sörla fer fram á Sörlastöðum – Hraunhamarsvellinum 6. til 9. maí næstkomandi. Skráning í greinar fer fram á vef Sportfengs og rennur fyrri skráningarfrestur út á miðnætti þann 27. apríl nk.
Seinni skráningarfrestur með hærra gjaldi rennur út á miðnætti 30. apríl nk.
Allar fyrirspurnir varðandi skráningu skulu berast skriflega á netfangið motanefnd@sorli.is
Athugið: Skráningar sem berast eftir að frestur rennur út, eða eru ógreiddar að þeim tíma, verða ekki teknar gildar.
Mælt er með að ljúka skráningu tímanlega svo hægt sé að leysa úr mögulegum vandamálum áður en frestur rennur út.
Mikilvægar upplýsingar fyrir þátttakendur
Ef færri en 20 skráningar eru í flokk, verður einungis riðið A-úrslit.
Ef skráningum í flokk eru undir 8 fellur sá flokkur niður.
Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á réttri og tímalegri skráningu.
Mótið er World Ranking mót og því mikilvægt að þátttakendur kynni sér nýjustu útgáfu keppnisreglna. Sjá nánar á vef LH og FEIF.
Greinar og aldurs-/hæfniflokkar í boði
Töltgreinar
T1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur
T2 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur
T3 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. og 2. flokkur
T4 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. og 2. flokkur
T7 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 2. flokkur
Fjórgangs- og fimmgangsgreinar
V1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur
V2 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. og 2. flokkur
V5 – barnaflokkur
F1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur
F2 – meistaraflokkur, unglingaflokkur, 1. og 2. flokkur
Skeiðgreinar
P1 (250 m skeið) – meistaraflokkur, ungmennaflokkur
P2 (100 m skeið) – meistaraflokkur, ungmennaflokkur,
P3 (150 m skeið) – meistaraflokkur, ungmennaflokkur
PP1 (gæðingaskeið) – meistaraflokkur, ungmennaflokkur, 1. og 2. flokkur
Fyrra skráningagjald er 9.000 kr fyrir allar greinar nema í unglinga og barnaflokkum er gjaldið 7.000 kr. Seinna skráninga
Hafnarfjarðarmeistaramót Sörla
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“
Kynningar á lokaverkefnum í Hestafræðideild
Skeifudagurinn haldinn hátíðlegur í gær