Hafþór Hreiðar nældi sér í keppnisrétt í A-úrslitum
Fyrstu B-úrslit dagsins á Íslandsmótinu voru í fjórgangi ungmenna. Þar var hart barist og knapar komu prúðir fram og sýndu góða reiðmennsku.
Hafþór Hreiðar Birgisson og Hróður frá Laugabóli stóðu efstir og áunnu sér þátttökurétt í A-úrslitum sem fram fara á morgun.
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 6 | Hafþór Hreiðar Birgisson / Hróður frá Laugabóli | 6,87 |
| 7 | Arnar Máni Sigurjónsson / Geisli frá Miklholti | 6,77 |
| 8 | Ragnar Rafael Guðjónsson / Hólmi frá Kaldbak | 6,57 |
| 9 | Hrund Ásbjörnsdóttir / Rektor frá Melabergi | 6,47 |
| 10 | Kristófer Darri Sigurðsson / Vörður frá Vestra-Fíflholti | 6,30 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH