Hákon til Mette Mannseth
Hákon frá Ragnheiðarstöðum, sem nú er á 5. vetur, er kominn í þjálfun til Mette Mannseth á Þúfum í Skagafirði.
Erlingur Erlingsson, sem tamdi hestinn í fyrra, tilkynnti stjórn félagsins fyrir nokkru að hann hyggðist ekki þjálfa hross á Íslandi í vetur vegna búferlaflutninga til útlanda. Í kjölfarið var haft samband við Mettu sem hefur tekið Hákon að sér.
Hákon er undan Álfi frá Selfossi og Hátíð frá Úlfsstöðum í Skagafirði, sem eru úrval í röðum töltara, bæði hvað gangtegundina varðar, og ekki síður geðslagið og viljann. Bæði voru úröku góð strax fjögra vetra. Erlingur tamdi og sýndi þau bæði.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH