Harður slagur í Meistaradeild í hestaíþróttum

  • 7. apríl 2011
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Sigurður Sigurðarson stendur efstur að stigum í Meistaradeildinni. Hér er hann á Loka frá Selfossi í keppni í fjórgangi.

Siggi Sig með aðra hönd á bikarnum

Lokamót Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum á Suðurlandi fer fram í Ölfushöllinni í kvöld. Keppt verður í slaktaumatölti og skeiði í gegnum höllina.  og hefst hún klukkan 19.00. Þrír knapar eiga möguleika á sigri: Sigurður Sigurðarson, sem er efstur eins og staðan er nú með 53 stig, Sigurbjörn Bárðarson, sem er með 37,5 stig, og Viðar Ingólfsson, sem er með 37 stig.
Mikil spenna er í loftinu.

Ljóst er að Sigurður mun mæta til keppni eins og grenjandi ljón. Hann hefur aðeins einu sinni unnið Meistaradeildina, árið 2001. Hann á hins vegar að baki flesta sigra í einstökum greinum í deildinni (miðað við 2008) og er sá knapi sem oftast hefur verið með aðra hönd á bikarnum. Tvisvar hafa tvíræð atriði í skipulagi og framkvæmd keppninnar valdið því að Sigurður hefur misst af titlinum.

Sigurbjörn og Viðar þekkja báðir bragðið af Meistaratitlinum mjög vel. Sigurbjörn er núverandi meistari og hefur unnið titilinn þrisvar í allt. Viðar hefur unnið hann tvisvar. Þeir eru nánast jafnir að stigum og báðir vel ríðandi í greinum kvöldsins. En Sigurður er líka vel ríðandi og því óneitanlega sigurstranglegastur þegar á allt er litið. En enginn er öruggur. Óvæntar uppákomur geta alltaf átt sér stað. Keppninni er ekki lokið fyrr en sá síðasti kemur í mark.

Rétt er að minna á að forsala aðgöngumiða er í fullum gangi í verslunum Top Reiter, Líflands og Baldvini og Þorvaldi og er aðgangseyrir krónur 1.500,- 

Á heimasíðu deildarinnar undir „liðin“ fer fram netkosning þar sem áhangendur deildarinnar geta valið sitt uppáhalds lið og knapa. Valið á liðinu/knapanum fer þannig fram að netkosningin hefur 50% vægi, dómarar 25% vægi og stjórn deildarinnar 25% vægi. Eins og áður verður bein útsending á heimasíðu deildarinnar www.meistaradeild.is.

Þetta er í fimmta sinn sem keppt er í Slaktaumatölti í deildinni. Einungis tveir knapar hafa haft sigur í þessa grein og er annar þeirra enn í deildinni en það er Viðar Ingólfsson, sem hefur sigrað í þrjú skipti af fjórum. Í öll skiptin á gæðingnum Tuma frá Stóra-Hofi.

Ráslista má finna HÉR.   

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link