Haustdagskrá Sörla
Mynd frá því í sumar á Íslandsmóti barna og unglinga, þegar skóflustungan var tekin fyrir nýju reiðhöll Sörla.
Nefndir hafa tekið til starfa við mikla og metnaðarfulla dagskrá sem enn er að bætast í. Nefndarmenn eru stórhuga þó að aðstöðuleysi okkar sé farið að verða okkur ansi mikill fjötur um fót í starfinu. Við erum því spennt fyrir því að geta komið öllu fyrir með tilkomu nýrrar reiðhallar sem er alveg handan hornsins.
Félagshús Sörla fór af stað í september og það er skemmtilegt að sjá bæði ný og ,,eldri“ andlit á staðnum. Nýir umsjónamenn félagshúss eru Sigríður Breiðfjörð Róbertsdóttir og Sunníva Hrund Snorradóttir og hlakkar Sörli mikið til samstarfsins við þær. Eins og alltaf þegar nýtt fólk tekur við stjórn verða eðlilega einhverjar áherslubreytingar þó svo að haldið verði í það gamla og góða starf sem búið var að þróa af forverum. Sörli stóð fyrir opnu húsi í félagshúsi Sörla í lok september þar sem fólk gat komið og kynnt sér starfsemina. Það er alltaf gaman að fá gesti og hugsanlega verður sambærilegt boð síðar í vetur og tengt við starf Æskulýðsnefndar.
Reiðmennskuæfingar unga fólksins fóru einnig af stað í september. Þær eru 2x í viku fram á vor. Verkleg kennsla hófst 4. október en í september var um að ræða blöndu af bóklegum tímum og líkamlegum æfingum sem nauðsynlegar eru í bland. Unga fólkið í Sörla er metnaðarfullt og það var farið að reka á eftir því að byrja vetrarstarfið. Það er einstaklega ánægjulegt að sjá unga fólkið vaxa sem reiðmenn og öðlast þekkingu sem miklu betri hestamenn, ár frá ári. Að auki má sjá að þau hafa myndað félagsskap í íþróttinni sem er ómetanlegur þegar fram í sækir. Þjálfarar yngri flokka eru undir ábyrgð og skipulagningu yfirþjálfara Sörla en hann sér einnig um gerð námsskrár. Þjálfararnir eru þau Sigurður E. Ævarsson og Anna Björk Ólafsdóttir sem bæði hafa áralanga og víðtæka reynslu af hestamennsku. Sigurður og Anna Björk hafa bæði lokið viðeigandi réttindum til þjálfunar, bæði hjá ÍSÍ og sérsambandi LH. Þar sem að metnaður Sörla liggur í því að mennta unga fólkið í faglegri reiðmennsku verður bætt inn í Reiðmennskuæfingar eftir því sem börnin taka inn hesta sína. Allar upplýsingar veitir Hinrik Þór Sigurðsson yfirþjálfari. Hægt er að senda á hann tölvupóst á netfangið [email protected]
Hins sívinsælu Knapamerki 2, 3 og 5 hófust einnig í september undir leiðsögn reiðkennaranna Ástu Köru Sveinsdóttur og Ástríðar Magnúsdóttur. Knapamerkin eru gott nám og góður undirbúningur í reiðmennsku sem lýkur með prófi í lok hverrar kennslulotu sem er mislöng eftir því á hvaða stigi hver nemandi er.
Reiðmennskuæfingar fullorðinna hefjast 18. október og standa fram á vor. Í ár eru æfingarnar svo vinsælar að loka þurfti fyrir skráningu aðeins nokkrum klukkustundum eftir að opnað var fyrir hana. Fjöldi fólks er á biðlista. Reiðmennskuæfingar hafa haft þau áhrif að Sörlafólk er farið að taka fyrr inn en ella og líf og fjör færist yfir hverfið strax á haustdögum. Dæmi eru um að nemandi frá því í fyrra hafi viljað kaupa fleiri en eitt pláss, svo vinsælt er þetta hjá þeim sem hafa reynslu frá fyrra ári. Þjálfarar fullorðinna verða þeir Hinrik Þór Sigurðsson reiðkennari og yfirþjálfari Sörla og Snorri Dal reiðkennari.
Nýtt og afar áhugavert helgarnámskeið verður haldið dagana 19.-21. nóvember. Um er að ræða námskeið sem töluverð eftirspurn hefur verið eftir. Við nefnum námskeiðið ,,Hugrakkir hestar og öruggir knapar“. Námskeiðið er um samband, skilning og virðingu á milli manns og hests þar sem markmiðið er að knapinn fái betri skilning á hvernig hegðun knapa og aðstæður hafa áhrif viðbrögð hestsins.
Frumtamninganámskeið með Robba Pet er fyrirhugað á haustmánuðum og hefst það strax í byrjun nóvember. Robbi er alltaf vinsæll en við vorum með þetta námskeið á dagskránni í fyrra en urðum frá að hverfa vegna Covid.
Reiðmaðurinn á vegum LBHÍ er hafinn. Um er að ræða seinna ár af Reiðmanni 1. Reiðmaðurinn hefur verið vinsæll meðal Sörlafólks og vonum við að nýr hópur hefjist næsta haust.
Aðalfundur félagsins fór fram 21. september. Hann var vel sóttur þó svo að stjórn vilji alltaf sjá fleiri. Stjórn Sörla hefur því hvatt félagsmenn til að koma endilega á aðalfund til að heyra hvað okkar frábæru sjálfboðaliðar hafa lagt ómælda vinnu í hin ýmsu verkefni og skemmtanir fyrir félagsmenn. Eftir fundinn var ekki annað hægt en að segja að Sörlafólk hafi getað borið höfuðið hátt yfir ótrúlegu og driftugu starfi í Covid ástandi. Það er mikill hugur í fólki og að viðhafa enn meira starf í vetur en í fyrra.
Skötuveislan verður að sjálfsögðu á sínum stað. Hún er algjörlega ómissandi í aðdraganda jóla og hennar var sárt saknað á síðasta ári.
Framundan er glæsileg Árs- og uppskeruhátíð Sörla 2021. Barna- og unglinga árshátíðin verður haldin á Sörlastöðum 5. nóvember og fyrir fullorðna verður hátíðin 6. nóvember. Sörlafólk er eindregið hvatt til að taka dagana frá. Árs- og uppskeruhátíðin hefur verið gríðarlega vinsæl þar sem ungir og aldnir mæta í sínu allra fínasta pússi og gera sér glaðan dag. Sörlafólk kann nefnilega að skemmta sér.
Sörli stefnir á að fara í hönnunarvinnu á nýjum keppnisjökkum fyrir Sörla í vetur þar sem að margir nýir Sörlafélagar eiga ekki jakka sem og að nú er landsmótsár og þar þurfa Sörlarar að skarta merki félagins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH