Haustfundur HÍDÍ

  • 3. október 2016
  • Fréttir
Reiðkennarinn Peter De Cosemo með fyrirlestur og sýnikennslu.

Haustfundur HÍDÍ verður fimmtudaginn 6. október n.k. í félagsheimilinu Harðarbóli í Mosfellsbæ.  Að þessu sinni verður breskur hestamaður og reiðkennari, Peter De Cosemo, með fyrirlestur og sýnikennslu.  Fyrirlesturinn og sýnikennslan verður á ensku, en báðir atburðirnir verða túlkaðir á íslensku.

Peter er reynslubolti í klassískri reiðmennsku og hefur áratugum saman stundað reiðkennslu út um allan heim.  Hann á að baki farsælan keppnisferil í dressage og hefur unnið með knöpum á heimsmælikvarða eins og t.d. Jane og Christopher Bartle, en þau þrjú ráku saman reiðskóla í mörg ár í Englandi.

Fundurinn er ætlaður íþróttadómurum og gæðingadómurum til að auka þekkingu sína við að meta líkamsbeitingu hesta í keppni.  Dómarar eru vinsamlega beðnir um að skrá sig inn á heimasíðu HÍDI. 

Allir áhugasamir aðilar eru einnig velkomnir á verklegu sýnikennsluna í Reiðhöllinni gegn 2,000 kr gjaldi.

 

Dagskrá er eftirfarandi:

            18.00 Fyrirlestur í Harðarbóli, einungis fyrir dómara.

            19.30 Súpa fyrir dómara í boði HÍDI.

            20.00 Sýnikennsla í Reiðhöllinni.

           

Vonumst til að sjá sem flesta.

Stjórn HÍDI.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link