Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands

  • 15. október 2010
  • Fréttir
Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands

Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður haldinn í félagsheimili Hestamannafélagsins Sleipnis,…

Hliðskjálf þriðjudaginn 19. október nk. kl. 20:00. Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur Bændasamtaka Íslands verður með framsögu á fundinum. Einnig munu Gunnar Arnarson og Hulda Gústafsdóttir, hrossaútflytjendur, upplýsa menn um horfur á útfluttningi hrossa í haust. Stjórnin hvetur félagsmenn til að fjölmenna á fundinn og taka þátt í umræðum. Kaffi og meðlæti í boði samtakanna.

                                                                       Stjórn Hrossaræktarsamtaka Suðurlands
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link