Haustmót Léttis
„Ákveðið hefur verið að halda íþróttamót á Hlíðarholtsvelli á Akureyri Föstudaginn 24 og Laugardaginn 25 ágúst n.k. Keppt verður í eftirtöldum greinum; tölti, fjórgangi, fimmgangi, gæðingaskeiði og 100 metra skeiði. Keppt verður einungis í einum opnum flokki í öllum greinum.
Drög að dagskrá.
Föstudagur. 24 ágúst.
Yfirlitssýning kynbótahrossa. Tímasetning óljós.
Kl 19.00. Tölt forkeppni.
Gæðingaskeið.
Laugardagur 25 ágúst.
Kl 9.00 Fjórgangur forkeppni.
Fimmgangur forkeppni.
Kl 12.00. Matarhlé.
Kl 13.00. Sölusýning. Sýningin verður tekin upp eru viðræður í gangi um að koma sýningunni inn á vinsælan söluvef.
Kl 14.30. 100 metra skeið.
Kl 15.30. Kaffihlé.
Kl 16.30. Úrslit fjórgangur – úrslit fimmgangur. B.Úrslit í tölti.
Kl 20.00. A Úrslit tölti.
Kl 20.30. Grill og gleði í reiðhöllinni fram á nótt.
Birt með öllum fyrirvörum um tímasetningar. Mótið Nánar auglýst síðar.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH