„Hefði glöð viljað eiga alla veganna eitt sæti í viðbót“
Eiðfaxi náði tali af Heklu Katarínu Kristinsdóttur eftir kynningu á landsliðinu 2023 en hún er þjálfari U21 hópsins.
Ungmennin sem við sendum á mótið eru firnasterk og held ég að það sé óhætt að segja að við höfum aldrei sent eins sterkan hóp af ungmennum á mótið.
Benedikt Ólafsson og Leira-Björk frá Naustum III eru þrefaldir Íslandsmeistarar í gæðingaskeiði í ungmennaflokki og unnu það í ár með 8,50 í einkunn en til samanburðar þá vannst gæðingaskeiðið í ungmennaflokki á síðasti Heimsmeistaramóti með einkunnina 7,71 og fullorðinsflokkurinn með einkunnina 8,66.
Jón Ársæll Bergmann og Frár frá Sandhóli hafa verið að næla sér í svaka einkunnir í bæði tölti og fjórgangi í vor og sumar. Þeir eru Íslandsmeistarar í tölti, fjórgangi og samanlögðum fjórgangsgreinum.
Glódís Rún Sigurðardóttir á Sölku frá Efri-Brú mun keppa í tölti, fimmgangi og gæðingaskeiði en þessar þrjár greinar þarf til að tikka inn sem samanlagður sigurvegari í fimmgangsgreinum. Glódís og Salka eru Íslandsmeistarar í fimmgangi þar sem þær hlutu 7,60 í úrslitunum sem er sjaldséð einkunn í fimmgangi í ungmennaflokki.
Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir og Ylfa frá Miðengi eru tvöfaldir Íslandsmeistarar í 100 m. skeiði, 2023 og 2021. Þau eru öskufljótt par og eru til alls líklegar á mótinu.
Herdís Björg er yngsti knapi landsliðsins einungis 17 ára gömul. Herdís og Kvarði hafa náð eftirtektarverðum árangri í tölti undanfarin ár. Urðu Íslandsmeistarar í unglingaflokki í tölti árið 2022 og þau unnu töltið í ungmennaflokki á Íslandsmótinu sem fór fram í lok júní með glæsieinkunnina 8,11.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
„Einn fyrir alla og allir fyrir einn“