Hefur prófað rúmlega 150 hestakyn og velur íslenska hestinn!
Alyssa og Josh við upphaf þáttaraðarinnar. Ljósmyndir: Úr einkasafni þeirra hjóna.
Hjónin Alyssa og Josh Mathews leita um þessar mundir að hinum eina rétta hesti. Það er kannski ekki í frásögur færandi – en aðferðarfræðin er það sannarlega. Leitin hefur nú þegar umbreyst í fjóra þætti sem streymt hefur verið víðs vegar um heiminn – og þó er leitin rétt að byrja.
Hjónin koma frá Colorado-fylki í Bandaríkjunum. Josh sinnir kvikmyndatöku og ýmsu kringum-snatti á meðan Alyssa er stjarnan. Þetta er ekki fyrsta ævintýri hennar. Hún hefur nú þegar prófað yfir 150 hestakyn og stefnir að því að prófa þau öll! Um hvert og eitt kyn er framleiddur þáttur og herlegheitin sýnd á Youtube þar sem Alyssa hefur yfir 120.000 fylgjendur.
Það má því með sanni segja að Alyssa hafi tekið hina eftirsóttu „upplýstu ákvörðun“ þegar þau hjónin völdu íslenska hestinn!
Þættirnir heita Riding home – A horse worth the journey eða Reiðin heim – hestur sem er ferðarinnar virði. Og nú ríður á, finnst hesturinn sem er þess virði að flytja heim til Colorado-fylkis?

Hjónin bregða á leik.
Móálóttur með mikið fax
Við áhorf fara reglulegir væmniskrampar um íslenska freðmýrarhjartað, enda um bandarískt sjónvarpsefni að ræða. Þættirnir eru samt áhugaverðir, einlægir og að vissu leyti spennandi. Hver vill ekki vita hvaða hestur verður fyrir valinu? Þetta er eins og að horfa á America’s Got Talent með íslenskum hestum!
Markmið hjónanna er skýrt. Alyssa á sinn íslenska hest en nú stendur til að finna hest fyrir Josh sem er:
– Fimm til sjö vetra
– Geldingur eða hryssa (ekki graðhestur)
– Sterkur og vel byggður
– Rólegur og áreiðanlegur hestur sem allir hafa gaman að
– Með mikið og auðvelt tölt
– Efnilegur til að vaða ár, fara um fjalllendi, skóga og vera í kringum villt dýr (m.a. góður að mæta bjarndýrum í reiðtúr)
– Helst móálóttur með mikið fax (ekki skilyrði og þó …)
– Ekki svakalega dýr (sem sagt, ekki 124.000.000 kr. líkt og verðlaunafjárhæð America’s Got Talent, þótt nákvæmt verðviðmið komi ekki fram).
Og þá hefjast leikar!

Með Eldhestum í fjörunni við Þorlákshöfn.
Enginn Fiat heldur Lamborghini
Í fyrsta þætti heimsækja þau Kjarr og prófa þar nokkra hesta, ræða við Larissu Silju og fá góða punkta um reiðmennsku. Í öðrum þætti ferðast þau með Eldhestum annars vegar yfir Ölfusárósa og út á strönd á milli Eyrarbakka og Þorlákshafnar og hins vegar upp í Reykjadal. Þessi þáttur er óskapleg landkynning. Fjörið hefst svo fyrir alvöru í þriðja þætti þegar Viðar Ingólfsson mætir á svið. Hann skellir karlinum „ekki á neinn Fiat“, líkt og Viðar segir sjálfur, „heldur Lamborghini!“ Höfundur vonar að það teljist ekki til spilliefnis (Höskuldarviðvörunnar), en karlinn lifir af, brosir raunar svo breitt að það glittir í tennur í gegnum þétt alskeggið. Í fjórða þætti heimsækja þau kunningja sína hjá Íslandshestum og prófa þar nokkra reynda fjallahesta.
Fleiri eru þættirnir ekki þegar þetta er skrifað en sögunni vindur fram á Youtube. Skemmst er frá því að segja að fjórði þáttur endar á þeim vangaveltum Josh hversu dýrt verði að kaupa tvo hesta!
Við höldum niðri í okkur andanum og fylgjumst áfram með hjónunum tölta sína leið um landið. Hvaða hestur verður fyrir valinu? Verða þeir kannski tveir? Setur þau einhver á alvöru vekring? Svipar bjarndýri ekki til barnavagns, svona á förnum vegi?
Eitt er víst, enn einu sinni getum við rifnað úr monti af þessum hesti sem við eigum öll saman. Þetta er ekkert höfðatölumont, ekkert „best í heimi miðað við höfðatölu“ eins og okkur þykir gott að segja. Alyssa hefur prófað yfir 150 hestakyn og velur íslenska hestinn. Það hlýtur einfaldlega að þýða að hann sé allra hesta bestur – og hana nú.
Fyrsta þátt má sjá hér:
Margareterhof er selt
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Tilnefningar til knapa ársins í Noregi