„Heiður að fá að taka þátt í þessu“
Viðtal við Ingiberg Árnason landsliðsknapa
Eiðfaxi náði tali af Ingibergi Árnasyni eftir kynningu landsliðsins 2023 en fer hann með Sólveigu frá Kirkjubæ á Heimsmeistaramótið í Hollandi fyrir Íslands hönd.
Ingibergur Árnason og Sólveig eru eitt fljótasta parið á heimsvísu í skeiðgreinunum og hafa verið um árbil. Ingibergur er í hestamannafélaginu Sörla þar sem hann stundar útreiðar af kappi. Ingibergur er eini fullorðni knapinn í liðinu sem er ekki atvinnumaður í greininni og mun keppa á sínu fyrsta Heimsmeistaramóti í ágúst.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
„Einn fyrir alla og allir fyrir einn“