Heimsklassa Hulda
Hulda Gústafsdóttir landaði sigri í fimmgangskeppni Meistaradeildar með öruggri og faglegri reiðmennsku í úrslitum nú í kvöld á hesti sínum Birki frá Vatni. Með því skaut hún Guðmundi Björgvinssyni á Sjóð frá Kirkjubæ aftur fyrir sig en þeir komu efstir inn í úrslit. Þriðju urðu Jakob Sigurðsson á Skýr frá Skálakoti sem tók þátt í sinni fyrstu fimmgangskeppni.
Úrslit kvöldsins urðu eftirfarandi:
1. Hulda Gústafsdóttir Birkir frá Vatni Hestvit / Árbakki / Svarthöfði 7.43
2. Guðmundur Björgvinsson Sjóður frá KirkjubæHestvit / Árbakki / Svarthöfði 7.21
3. Jakob Svavar Sigurðsson Skýr frá Skálakoti Top Reiter 7.10
4. Þórarinn Ragnarsson Hildingur frá Bergi Hrímnir / Export hestar 7.02
5. Árni Björn Pálsson Oddur frá Breiðholti í Flóa Top Reiter 7.00
6. Daníel Jónsson Þór frá Votumýri 2 Gangmyllan 6.98
7. Teitur Árnason Hafsteinn frá Vakurstöðum Top Reiter 6.38
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH