Heimsmeistaramótið hefst í dag – video
Það er líf í St. Radegund í Austurríki og nálægum bæjum enda hefst Heimsmeistaramótið hér í dag.
Keppendur hafa undanfarna daga fengið tíma til að æfa hestanna og má á meðfylgjandi myndbandi frá mótshöldurum sjá glitta í nokkra íslenska liðsmenn við æfingu. Þá hefur verið lagt lokahönd á allar framkvæmdir á svæðinu, söluþorpið er komið upp og býður St. Radegund nú gesti Heimsmeistaramótsins velkomna.
Kynbótahrossin eru í eldlínunni fyrstu tvo daga mótsins. Í dag fara fram byggingardómar kynbótahrossa, en á morgun munu þau ríða í braut og fá dóm fyrir hæfileika. Í kvöld er hið svokallaða þjóðarkvöld, þar sem fulltrúar keppnislandanna bjóða upp á þjóðlega rétti og drykki.
Veðurspár boða milt veður fyrstu daga mótsins, hlýju og skýjuðum himni, en í síðari part vikunnar er hætt við rigningu. Það væsir þó hvorki um gesti, keppendur né hross, aðstæður eru við fyrstu sýn afar góðar.
Eiðfaxi mun fylgjast grannt með Heimsmeistaramótinu í ár og munu lesendur geta nálgast allar fréttir, úrslit, video og myndir á Heimsmeistarmótssíðu vefsins á meðan á mótinu stendur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH