Helgarpassar gilda á föstudagskvöldinu
Stjórn Landsmóts ehf. hefur tekið þá ákvörðun að breyta gildistíma helgarpassa inn á Landsmót.
Þeir taka því gildi kl. 18.15 föstudaginn 1. júlí en ekki á miðnætti eins og áður var búið að gefa út.
Hægt verður að kaupa miða við hliðið inn á Vindheimamela en einnig minnum við á að til að forðast biðraðir er enn hægt að kaupa miða á heimasíðu Landsmóts og nýta sér afslátt BÍ, LH eða N1 kortanna.
Við hlökkum til að sjá ykkur fyrir norðan!
Styttu haustið með EiðfaxaTV