Hemluhestarnir Ómur og Heljar
Meðal atriða á Orrasýningunni var sýning tveggja afburða gæðinga úr ræktun Vignis Siggeirssonar í Hemlu…
þeir Ómur og Heljar… Vignir sýndi Heljar en Sigurður Vignir Matthíasson Óm. Þessir hestar eru báðir afburða gæðingar og miklir gripir. Vignir og Heljar sigruðu A flokk gæðinga á gæðingamóti á Hellu í sumar sem leið og má segja að með sýningunni um helgina hafi þeir styrkt enn stöðu sína í umræðunni um gæðingaval nú í aðdraganda Landsmóts. Hér fylgir vídeo myndbrot af þeim félögum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH