Hestaþing Loga

  • 31. júlí 2014
  • Fréttir
Gæðingakeppni og opin töltkeppni.

Opið er fyrir skráningar fyrir Hestaþing Loga en mótið verður haldið um næstu helgi 2. og 3. ágúst. Skráningin er í gegnum vefslóðinahttp://skraning.sportfengur.com/ og velja skal Mót í flipanum upp fyrir miðju og þar á eftir finna hestamannafélagið Loga og svo Hestaþingið. Skráð er í alla flokki gæðingakeppni og tölt í gegnum Sportfeng. Skráningin lokar á miðnætti á miðvikudagskvöldið og ekki verður tekið við skráningum eftir það. Skráningargjöld eru í töltið 3000 kr fullorðna, 2000 kr ungmenni og unglingar og 1700 kr. börn. Skráningar í allar kappreiðagreinar, skeið, stökk og brokk má senda beint á [email protected] en einnig má skrá á staðnum á laugardaginn. 
Í 100 m fljúgandi skeið eru rukkaðar 3.000. kr fyrir skráningu sem fer í peningaverðlaun.

Leggja skal skráningargjald inn á reikning 0151-26-606 kennitala 570991-1089 og kvittun send á[email protected] Skráning tekur ekki gildi fyrr en kvittun fyrir greiðslu hefur borist.

Áætluð dagskrá:
Laugardagur 2. ágúst Forkeppni í gæðingakeppni Loga.
Kl. 13:00 B flokkur gæðinga
Unglingaflokkur
Ungmennaflokkur
Barnaflokkur
A flokkur gæðinga.
Æskufjör
Grill
Kl.18:00 Kappreiðar
Kappreiðar (opnar)
150 m skeið
250 m skeið
300 m brokk
300 m stökk

Sunnudagur 3. ágúst. Opin töltkeppni
Kl. 08:30 Forkeppni í tölti, fullorðnir
Forkeppni í tölti unglingar
Forkeppni í tölti, Ungmenni
Forkeppni í tölti, barnaflokkur
B-úrslit í tölti, fullorðnir
B-úrslit í tölti, unglingar, ungmenni
B-úrslit í tölti, barnaflokkur
Kl. 12:30 Mótsetning
Pollaflokkur
Kl.13:00 B-úrslit:
B-flokkur gæðinga
unglingar
Ungmenni
Börn
A-flokkur gæðinga
A-úrslit: 
B-flokkur gæðinga
unglingar
Ungmenni
Börn 
A-flokkur gæðinga
Kl.15:00 100 m fljúgandi skeið (Skráningagjald kr. 3.000.- sem fer í peningaverðlaun
Kl. 16:00 A-úrslit:
í tölti, barnaflokkur
í tölti, ungmenni
í tölti, unglingar
í tölti, fullorðnir

Áætluð mótslok eru 17:00

Tímasetningar eru áætlaðar en skýrast eftir að skráningu lýkur. 

Aðgangseyrir á sunnudeginum er 1000 kr og frítt er fyrir grunnskólabörn.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link