Hestaþing Mána framundan

  • 28. maí 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Jóhanna Margrét Snorradóttir og Kubbur frá Læk.

Gæðingakeppni haldin á Mánagrund 6.-7. júní.

Opið hestaþing Mána verður haldið að Mánagrund 6. og 7. júní nk. Skráning er hafin á Sportfeng en henni lýkur á miðnætti mánudaginn 1. júní að er fram kemur í tilkynningu frá mótanefnd Mána.

„Skráningargjald í gæðingakeppnina er kr. 4000 en kr. 3500 fyrir börn og unglinga.

Boðið verður upp á eftirfarandi flokka:

  • A-flokkur gæðina
  • A-flokkur gæðinga, áhugamenn (veljið Annað 1. flokkur í Sportfeng)
  • B-flokkur gæðinga
  • B-flokkur gæðinga, áhugamenn (veljið Annað 2. flokkur í Sportfeng)
  • Ungmenni
  • Unglingar
  • Börn
  • Tamningaflokkur – 5 vetra og yngri (veljið Annað/annað í Sportfeng)

Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina og/eða fella niður greinar og flokka náist ekki næg þátttaka.

Ath að ef greitt er með millifærslu (kt. 690672-0229, 0121-26-3873) þá verður að setja pöntunarnúmer sem tilvísun og senda póst á [email protected]

Ef greiðsla hefur ekki borist þá er keppandi ekki skráður á mótið. Komi upp vandamál við skráningu er hægt að hafa samband við Helgu Hildu í s. 848-1268 og Bjarna s. 866-005.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link