Hin danska Julie Christiansen með mikla yfirburði
Julie og Straumur
Julie Christiansen og Straumur frá Seljabrekku voru rétt í þessu að hljóta 8.07 í einkunn í slaktaumatölti og eru þannig komin í efsta sæti og með mikla yfirburði. Sigursteinn og Skuggi eru því komnir í annað sæti með 7.30.
Ljóst er að erfitt verður að skáka Julie og Straum, en margir sigurstranglegir eiga eftir að ríða sína sýningu, þar á meðal Jakob Svavar og Alur frá Lundum sem er innan skamms.
Hér er staðan sem stendur :
01: 054 Julie Christiansen [DK] – Straumur frá Seljabrekku [IS2004125130] 8,07
PREL 8,0 – 8,1 – 8,1 – 8,3 – 7,9
02: 015 Sigursteinn Sumarliðason [IS] – Skuggi frá Hofi I [IS2005177785] 7,30
PREL 7,0 – 7,1 – 7,3 – 7,5 – 7,5
03: 159 Ladina Sigurbjörnsson [CH] – Tór frá Auðsholtshjáleigu [IS2002187018] 7,13
PREL 7,1 – 7,0 – 6,9 – 7,4 – 7,3
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH