Hlé á miðsumarssýningu á Hellu vegna Covid smita

  • 27. júlí 2021
  • Fréttir

Eins og Eiðfaxi sagði frá fyrr í dag að þá komu upp Covid-19 smit á kynbótasýningu á Gaddstaðaflötum í síðustu viku. Eftirfarandi tilkynningu sendi RML frá sér rétt í þessu.

Vegna gruns um að smit hafi komið upp hjá starfsmönnum RML sem voru að vinna á kynbótasýningum á Gaddastaðaflötum í síðustu viku og einnig hjá knöpum,  verður þriðja holl ekki haldið í dag 27. júlí og ekki fyrsta holl á morgun 28 júlí. Ákvörðun verður tekin á morgun eftir að starfsfólk hefur farið í sýnatöku og fengið niðurstöður, um hvert framhaldið verður með þessa sýningu.

Við beinum jafnframt eindregnum tilmælum um að þeir sem komi með hross til dóms fari í skimun og láti vita um niðurstöðu hennar áður en komið er með hross til dóms. Enn fremur að viðhöfð er sú regla að aðeins einn aðstoðarmaður fylgi sýnenda hross í sköpulagsdóm.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar