Hófadynur Geysis 2013

  • 1. febrúar 2013
  • Fréttir
Hófadynur Geysis 2013

„Fyrsta mótið í Hófadyns mótaröðinni verður haldið í Rangárhöllinni á Hellu, miðvikudaginn 6. febrúar og hefst klukkan 18:00.
Að þessu sinni verður keppt í fjórgangi. Næsta mót verður fimmgangur og haldið þann 8.mars. Þriðja og síðasta mótið verður töltfimi og verður haldið 10.apríl. 

Verða þau nánar auglýst síðar.

100.000 kr. verðlaun verða fyrir 1. sæti, samanlagt úr öllum mótunum.
50.000 kr. verðlaun verða fyrir 2. sæti, samanlagt úr öllum mótunum.
25.000 kr. verðlaun verða fyrir 3. sæti, samanlagt úr öllum mótunum.

Folatolla uppboð verður milli atriða. Tollar undir viðurkennda glæsihesta.

Aðgangseyri verður 500 kr. og gildir miðinn sem happdrættismiði, dregið verður úr seldum miðum á seinasta mótinu. Veglegir vinningar.

Skráning er hafin og fer fram á heimasíðu Geysis www.hmfgeysir.is (þar ýtir þú á hnappinn skráningarkerfi, velja skráning, svo mót,svo félag(Geysir) síðan fylla út alla reiti).

Skráningu lýkur mánudaginn 04.02.13 kl 23:59. Skráningargjald er 4000 kr og greiðist um leið og skráð er.
Ef vandræði koma upp er hægt að hringja í 8637130 ÁÐUR en skráningu lýkur,“ segir í tilkynningu frá nefndinni
 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link