Hörð barátta í KB mótaröðinni
Í Borgarfirði hefur verið starfrækt KB mótaröðin sem er vetrarmótaröð og hefur hún farið vaxandi frá ári til árs. Í ár er engin undantekning þar á og nú á síðasta móti vetrarins var slegið met í skráningum. Ástæða þessarar aukningar á skráningum má að hluta til rekja til þess að það lið sem leiðir nú keppnina ætlar sér greinilega stóra hluti. Það lið hefur tekið á það ráð að fá knapa norðan úr landi til að etja kappi á lokamótinu til að styrkja sitt lið. Verður því mjög gaman að sjá hvernig leikslokin verða þar sem mjög mjótt er á munum í liða stigakeppninni.
Á morgun takast liðin á í síðasta sinn á þessum vetri og er staðan fyrir síðasta mót sú að LIT liðið leiðir keppnina með 96,08 stig, Gæðaknapar í öðru með 95,80, þar á eftir Besta liðið með 82,67 stig, Sólargeislar með 66,07, Skjólbrekka með 65,20 og Riddararnir með 28,40 stig. Mótið fer fram í reiðhöllinni Faxaborg er staðsett rétt fyrir utan Borgarnes.
Eins og sjá má er 0,28 stiga munur á efstu tvemur liðunum og má því búast við að hart verði barist fram á síðustu mínotu. Þegar reglurnar eru skoðaðar má sjá að mikilvægt er að raða rétt og vel upp í hvert lið ef stefnan er sett á sigur. Það er m.a. vegna þess að sérstök bónusstig eru gefin fyrir efstu sætin í hverjum styrkleikaflokki fyrir sig og því mikilvægt að hafa góða knapa í hverjum styrkleikaflokki. Hugsunin á bak við þetta fyrirkomulag var m.a. til að fá fólk í ólíkum aldurs- og styrkleikaflokkum til að vinna saman, mynda góða stemningu og liðsheild sem að öllu jöfnu hefur náðst að byggja upp í Faxaborginni.
Þar sem að þetta er síðasta mót vetrarins er í lokin m.a. sérstök verðlaun veitt fyrir vinsælasta knapann og vinsælasta liðið, valið af áhorfendum á síðasta mótinu.
BT
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH