Hraunar frá Hrosshaga allur
Icehorse Festival 2022. Photo: Henk Peterse
Stóðhesturinn Hraunar frá Hrosshaga er allur. Þetta tilkynnti þjálfari hans Trine Risvang á Facebook í gær. Hraunar lést af völdum æðagúlps í heila í síðustu viku.
Hraunar sló í gegn í flokki fjögurra vetra stóðhesta á Landsmótinu á Hólum árið 2016. Þar hlaut hann m.a. 9,5 fyrir hægt tölt og 8,24 í aðaleinkunn, sem klárhestur. Hann var sýndur af Helga Guðjónssyni sem er jafnframt ræktandi hestsins ásamt Sólon Morthens. Hraunar var seldur seinna um árið og fór út til Danmörku þar sem hann hefur verið í þjálfun hjá Trine. Peter Nagel er sá sem keypti Hraunar.
Hraunar var undan Kjarna frá Þjóðólfshaga 1 og Díönu frá Breiðstöðum. Hann á skráð 69 afkvæmi í WorldFeng en hæst dæmda afkvæmi hans er Hrefna frá Fákshólum, móðir hennar er Gloría frá Skúfslæk. Hrefna hlaut 8,24 í aðaleinkunn.
„Takk fyrir allt saman,“ skrifaði Trine Risvang í færslu á Facebook til minningar um Hraunar en hægt er að sjá færsluna HÉR.
„Hann skilur eftir sig mikið tómarúm í hesthúsinu, í hjarta mínu og hversdagslífi mínu. Fyrir mér var hann mjög sérstakur hestur vegna einstaks eðlis og frábærra gangtegunda. Ég hef aldrei hitt jafn vingjarnlegan, forvitinn og jákvæðan hest og er ævinlega þakklát fyrir þann tíma sem við áttum saman og þá reynslu sem hann gaf mér og okkur.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH