Hross í hollri vist

  • 8. mars 2010
  • Fréttir
Hross í hollri vist

Endurmenntun LbhÍ stendur fyrir námskeiði laugardaginn 13. mars um hesthúsbygginar – Hross í hollri vist! Hvetjum alla sem standa í slíku, nýbyggingum eða lagfæringum, að skrá sig sem fyrst. Einnig hvetjum við ykkur til að miðla upplýsngum um þetta námskeið til áhugasamra hestamanna 😉

Námskeið LbhÍ:  Hross í hollri vist – æskilegt að skrá sig fyrir 8. mars

Námskeiðið er í boði fyrir hestamannafélög, hestamenn og annað áhugafólk um hesthúsbyggingar.

Lýsing: Á námskeiðinu er farið yfir skynjun og atferli hrossa með sérstaka áherslu á það hvernig hross skynja umhverfið í hesthúsi. Fjallað um mikilvægi réttrar hönnunar loftræstingar og skoðuð nokkur dæmi. Þá verður farið yfir með hvaða hætti hanna á og ganga frá gólfum í hesthúsum og jafnframt rætt um kosti og galla mismunandi undirburðar. Þá verður drjúgum tíma varið til þess að ræða um aðbúnað hrossa og annarrar aðstöðu í hesthúsinu, sem og í útigerði. Að síðustu verður kynning á hönnun lausagönguhesthúsa.

 

Umsjón og kennsla: Sigtryggur Veigar Herbertsson og Snorri Sigurðsson, sérfræðingar hjá LbhÍ.

Stund og staður:  lau. 13. mars kl 9:30-17:00 (9 kennslustundir) í Ásgarði á Hvanneyri.

Verð: 14.500 kr (kennsla, gögn og veitingar).

 

Skráningar hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á [email protected]  eða í síma 433 5000

(fram komi nafn, kennitala, heimili og sími).

 

Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 5000 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda kvittun með skýringu á [email protected] . Minnum á stéttarfélags- og starfsmenntasjóði.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link