Hrossakjötsveisl Limsfélagsins
Hin árlega hrossakjötsveisla Limsfélagsins verður haldin laugardaginn 11.janúar 2014 í Félagsheimili Fáks, Víðidal.
Ræðumaður kvöldsins verður hinn óborganlegi Reynir Hjartarson, þekktur sem Æjatoll Hryllingsfélagsins, en það félag hélt utan um eignarhald á Hryllingi frá Vallanesi.
Matseðill:
Saltað og reykt hrosskjöt með gamla laginu.
Hrossbjúgu / kartöflustappa (mús)
Kartöflur, uppstúf, rauðkál og grænar.
Verð kr. 4.500 á mann. Forsala aðgöngumiða í Guðmundarstofu, félagsheimili Fáks miðvikudagskvöldið 8.janúar milli 20.00 – 22.00. Nánari upplýsingar veitir Helgi s. 6988370
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH