Hrossamessa í Flóahreppi

  • 11. febrúar 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Sigurður Sigurðarson heldur erindi á Hrossamessunni.

Sigurður Sigurðarson heldur erindi.

Uppskeruhátíð Hrossaræktarfélaga Flóahrepps og Hrossamessa verður haldin föstudagskvöldið 20. febrúar að Ferðaþjónustinni Vatnsholti að er fram kemur í tilkynningu frá stjórn hrossaræktarfélags Flóahrepps.

 „Dagskrá  heftst kl:20:30 með borðahaldi. „Hrossamessa“ kræsingar af ýmsum réttum. Hægeldað hrossafillet með sósu og meðlæti. Hrossabjúgu með jafningi, kartöflum og meðlæti, Hrossa Carpaccio, Saltað hrossakjöt.

Kostar aðeins 3490 kr pr mann.  Pantanir í Hrossamessuna þurfa að berast fyrir kl.22:00 mánudaginn 16.febrúar 2015 í síma hjá: Atli Geir 898-2256 eða mail: [email protected] og Ágústar Inga í síma 899-5494 eða á netfangið [email protected].

 Verðlaunaveiting félaganna áætlað að  hefjist um kl. 21:30 Veitt  verða verðlaun fyrir hæst dæmda stóðhest og hæst dæmdu hryssu Flóahrepps. Sigurður Sigurðarsson verður  með fyrirlestur.  Takið kvöldið frá.  Vonumst til að sjá sem flesta.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link