Hrossarækt 2011 á laugardag
Fagráð í hrossarækt minnir á ráðstefnuna Hrossarækt 2011 sem verður haldin á Hótel Sögu nk. laugardag 19. nóvember. Ráðstefnan er öllum opin sem láta sig íslenska hrossarækt varða jafnt fagfólki sem áhugamönnum.
Ráðstefnustjóri: Víkingur Gunnarsson
Dagskrá:
13:00 Setning – Kristinn Guðnason formaður Fagráðs í hrossarækt
13:05 Hrossaræktarárið 2011 – Niðurstöður kynbótamats – Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur BÍ
13:30 Heiðursverðlaunahryssur 2011 – Sjá yfirlit þeirra hér.
14:10 Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins
14:15 Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins
14:20 Erindi:
– Landnám hesta á eyjum Norður-Atlantshafsins, Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, Landbúnaðarháskóla Íslands, Hvanneyri
14:50 Tilnefningar og verðlaun fyrir ræktunarmann/menn ársins 2011
15:10 Kaffihlé
15:30 Kynbótahross á landsmóti, framtíðarsýn, Kristinn Guðnason
15:35 Umræður í umræðuhópum um innlegg Kristins
16:05 Niðurstöður úr umræðuhópum
16:20 Umræður um ræktunarmál almennt
17:00 Ráðstefnuslit
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH