Hulda Gústafsdóttir og Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu voru rétt í þessu að tryggja sér sæti á HM í Austurríki. Þau hlutu einkunnina 7,47 í seinni umferð á Gullmótinu í dag og eru því með meðaleinkunnina 7,49 út úr báðum umferðum.
Í öðru sæti á Gullmótinu er Eyjólfur Þorsteinsson á Hlekk frá Þingnesi með einkunnina 7,30 og þriðja er Olil Amble á Kraflari frá Ketilsstöðum með einkunnina 7,27.
Nú er matarhlé til kl. 13.30 en þá hefst keppni í fimmgangi ungmenna. Gullmennirnir hafa tendrað í grillinu og er svæðið umlukið steikarilmi og því um að gera að drífa sig á Sörlastaði.
Sex efstu keppendur mæta til úrslita á morgun. Hér að neðan eru niðurstöður úr fjórgangi.
Gullmótið
1 Hulda Gústafsdóttir / Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu 7.47
2 Eyjólfur Þorsteinsson / Hlekkur frá Þingnesi 7.3
3 Olil Amble / Kraflar frá Ketilsstöðum 7.27
4 Berglind Ragnarsdóttir / Frakkur frá Laugavöllum 7.07
5 Viðar Ingólfsson / Stemma frá Holtsmúla 1 – 7
6 Sigurbjörn Bárðarson / Penni frá Glæsibæ 6.93
7 Snorri Dal / Gustur frá Stykkishólmi 6.9
8 Sylvía Sigurbjörnsdóttir / Þórir frá Hólum 6.8
9 Anna S. Valdemarsdóttir / Bárður frá Skíðbakka III 6.77
10 Ragnhildur Haraldsdóttir / Eitill frá Leysingjastöðum 6.57
11 Hrefna María Ómarsdóttir / Grímur frá Vakurstöðum 6.47
12-13 Saga Mellbin / Bárður frá Gili 6.4
12-13 Signý Ásta Guðmundsdóttir / Tvista frá Litla-Moshvoli 6.4
14 Hrefna Hallgrímsdóttir / Penni frá Sólheimum 5.77
15 Ásta Márusdóttir / Teinn frá Laugabóli 5.47
Úrtaka
1 Hulda Gústafsdóttir / Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu 7,50 7,47 7,49
2 Olil Amble / Kraflar frá Ketilsstöðum 7,47 7,27 7,37
3 Anna S. Valdemarsdóttir / Bárður frá Skíðbakka III 6,77 6,77 6,77
4 Saga Mellbin / Bárður frá Gili 6,53 6,40 6,47
5 Eyjólfur Þorsteinsson / Ósk frá Þingnesi 7,27 0,00 3,64
6 Anna S. Valdemarsdóttir / Ásgrímur frá Meðalfelli 6,83 0,00 3,42