Húnvetnska liðakeppnin að hefjast
Sjöunda mótaröðin í Húnvetnsku liðakeppninni fer senn að hefjast en jafnan ríkir mikil eftirvænting fyrir mótinu á meðal hestamanna í Húnaþingi vestra.
Dagssetningar fyrir mót vetrarins eru:
14. febrúar smali
6. mars fjórgangur
20. mars fimmgangur og tölt
11. apríl tölt.
Reglur keppninnar má sjá á heimasíðu Hestamannafélagsins Þyts en þar segir að sömu reglur séu og í fyrra en nú bætist barnaflokkur. Engin fyrirfram ákveðin lið eru skráð til leiks, skrá þarf öll lið inn í mótaröðina, tilkynna þarf liðin til mótanefndar í síðasta lagi fyrir lokaskráningardag fyrsta móts á netfangið [email protected] ásamt liðsstjóra liðsins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH