Hvað er mýkt?-
Mýkt í ganglagi einkennir hinn sanna íslenska gæðing og endurspeglar „hið tindrandi hljómfall í sporinu“ eins og Sigurður heitinn í Kirkjubæ komst svo réttilega að orði. Þessi eftirsótti eiginleiki er nú mjög til umfjöllunar í heimi ganghestakynja. Menn hafa áhyggjur af því að mjúkgengir hestar eigi undir högg að sækja vegna svonefndra plankatöltara, fótaburðarhesta sem virka sjónrænt fallega en eru með stirt hreyfieðli. Þróunin er augljós og vilja menn nú skera upp herör til að varðveita hið mikilvæga, mjúka ganglag.
Einar Öder Magnússon og Telma L. Tómasson fjalla um mýkt í 3. Tbl. Eiðfaxa og er óhætt að mæla með lestri greinarinnar í aðdraganda sjónarspilsins á landsmóti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH