Hver verður útnefndur Skeiðknapi ársins 2023 ?


Frá verðlaunaafhendingu í 150 metra skeiði á Íslandsmótinu árið 2022
Uppskeruhátíð hestamanna fer fram á laugardaginn næstkomandi í Gamla Bíói. Þar mun LH veita hin ýmsu verðlaun og útnefna knapa ársins í hinum ýmsu flokkum.
Mikil spenna ríkir yfir því hvaða knapar standa uppi sem sigurvegarar í sínum flokki og því fór Eiðfaxi á stúfana og spurði nokkra hestamenn á förnum vegi hverjir þeir héldu að yrðu útnefndir, hér fyrir neðan má sjá svör þeirra við því hver verður skeiðknapi ársins.
Skeiðknapi ársins 2023
Tilnefnd eru:
- Daníel Gunnarsson
- Elvar Þormarsson
- Hans Þór Hilmarsson
- Ingibergur Árnason
- Teitur Árnason