Hvetjum hestamenn til að glitra með einstökum börnum
Stimpill fór glitrandi inn í daginn Mynd: SSP
Einstök börn er stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma og heilkenni. Félagið nýtir daginn til vitundarvakningar í samfélaginu með yfirskriftinni Glitraðu með einstökum börnum. Hvetur félagið fólk til að glitra til stuðnings þeirra sem lifa með sjaldgæfum sjúkdómum.
Elísabet Sveinsdóttir, félagi í hestamannafélaginu Sleipni og einn af okkar fremstu þulum, á einstakt barnabarn. Langar henni að hvetja alla hestamenn til þess að glitra saman í daga. Einnig hvetur hún alla knapa Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum til að mæta glitrandi í kvöld þegar keppni í fimmgangi fer fram en þar mun hún gefa efstu þremur knöpunum Drekahjarta í verðlaun allt til styrktar frábæru málefni.
Þrátt fyrir þunga þjónustuþörf félagsmanna fær félagið Einstök börn engan stuðning frá ríkinu og er því algjörlega háð stuðningi einstaklinga og fyrirtækja. Hægt er að styrkja félagið á heimasíðu þeirra en einnig hefur landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir sett afstað uppboð á fótboltatreyjum úr einkasafni hennar; eina frá Bayern München þar sem hún er líka fyrirliði og svo tvær úr leikjum íslenska landsliðsins. Hægt er að fara inn á þessa síðu hérna til að gera tilboð í treyju eða skó, eða bæði, og kaupa happadrættismiða. Allt til styrktar frábæru málefni.
Eiðfaxi hvetur alla hestamenn til að grípa í pallíettu og/eða glimmergallanna, setja glimmer í fax og tagl og skella sér í góðan reiðtúr í tilefni dagsins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH