ÍM 2010 B úrslit í fjórgangi
Elvar Þormarsson og Þrenna frá Strandarhjáleigu sigruðu B úrslitin í fjórgangi eftir hörkuúrslitakeppni þar sem úrslit réðust ekki fyrr en á síðustu gangtegundinni sem er yfirferðartölt. Þorvaldur Árni Losti leiddu úrslitin allt fram að yfirferðartöltinu en þar fengu Elvar og Þrenna frábæra einkunn og sigruðu að lokum og keppa því í A úrslitum á morgun.
Fjórgangur
B úrslit 1. flokkur –
1 Elvar Þormarsson / Þrenna frá Strandarhjáleigu 7,73
2 Þorvaldur Árni Þorvaldsson / Losti frá Strandarhjáleigu 7,49
3 Viðar Ingólfsson / Kliður frá Tjarnarlandi 7,45
4 Anna S. Valdemarsdóttir / Bruni frá Hafsteinsstöðum 7,35
5 Játvarður Ingvarsson / Klaki frá Blesastöðum 1A 7,31
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH