Ískaldir og Svellkaldar haldin í Skautahöllinni
Ísmót LH verða með örlitlu breyttu móti í ár, nýjum viðburði verður bætt við sem mun kallast Ískaldir.
Þar munu ungmenna-, áhugamanna- og opin flokkur spreyta sig á svellinu. Svellkaldar verða á sínum stað í Skautahöllinni en Allra sterkustu mun flytja í Sprettshöllina.
Búið er að festa eftirfarandi dagsetningar:
- 7. mars – Ískaldir
- 21. mars – Svellkaldar
- 4. apríl – Allra sterkustu
Skráningar hefjast von bráðar en allur ágóði af skráningargjöldum rennur til íslenska landsliðsins í hestaíþróttum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landssambandi hestamannafélaga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH