Íslandsmeistara feður
Hafþór Hreiðar Birgisson og Vörður frá Vindási urðu Íslandsmeistarar í fimmgangi ungmenna í sumar. Faðir Varðar er Spuni frá Vesturkoti.
Það er að mörgu að huga þegar kemur að ræktun og oft gaman að grúska á WorldFeng. Blaðamaður Eiðfaxa ákvað að kanna hvort einhverjir stóðhestar ættu fleiri afkvæmi í úrslitum á Íslandsmóti fullorðna og ungmenna en aðrir.
Á Íslandsmóti fullorðna og ungmenna átti Spuni frá Vesturkoti flest afkvæmi í úrslitum eða 6 talsins og í þeim hópi urðu þrír Íslandsmeistarar. Vörður frá Vindási og Hafþór Hreiðar Birgisson urðu Íslandsmeistarar í fimmgangi í ungmennaflokki, Fjalladís frá Fornusöndum og Elvar Þormarsson urðu Íslandsmeistarar í gæðingaskeiði í meistaraflokki og Júlía frá Syðri-Reykjum og Hákon Dan Ólafsson urðu Íslandsmeistarar í samanlögðum fimmgangsgreinum í ungmennaflokki. Til gamans má geta að í A úrslitum í ungmennaflokki röðuð afkvæmi Spuna sér í efstu þrjú sætin. Vörður og Hafþór efstir, í öðru sæti Júlía og Hákon og í því þriðja Glódís Rún Sigurðardóttir og Kári frá Korpu.
Næstur á eftir Spuna með afkvæmafjölda í úrslitum er Arður frá Brautarholti en hann átti 5 afkvæmi. Þar má fyrsta telja Íslandsmeistarann í slaktaumatölti Kopar frá Fákshólum og Jakob Svavar Sigurðsson og Íslandsmeistarann í samanlögðum fimmgangsgreinum fullorðna Sölva frá Stuðlum og Hauk Baldvinsson, sem urðu einnig í 5. sæti í gæðingaskeiði. Önnur afkvæmi eru Sigurrós frá Gauksmýri en hún var í 4. sæti í 150m. skeiði og 3.sæti í 100m. skeiði ásamt knapa sínum Eyrúnu Ýr Pálsdóttur, Vökull frá Efri-Brú var í 4 sæti í tölti T1 í meistaraflokki ásamt knapa sínum Ævari Erni Guðjónssyni og Arðsemi frá Kelduholti sem var í 9.sæti í slaktaumatölti í ungmennaflokki ásamt knapa sínum Kristófer Darra Sigurðssyni.
Spuni hlaut Sleipnisbikarinn 2016 og Arður hlaut hann 2018
Óskasteinn frá Íbishóli kemur næstur á eftir þeim en hann átti 4 afkvæmi í úrslitum þ.á.m. Íslandsmeistarann í tölti í ungmennaflokki Sigurstein frá Íbishóli en knapi á honum var Guðmar Freyr Magnússon. Önnur afkvæmi eru Stássa frá Íbishóli sem deildi 3.sæti í tölti í ungmennaflokki en knapi á henni var Glódís Rún Sigurðardóttir, Gimsteinn frá Víðinesi 1 var í sjöunda sæti í fimmgangi í ungmennaflokki en knapi á honum var Katla Sif Snorradóttir og Náttúra frá Flugumýri sem varð í 2. sæti í gæðingaskeiði í ungmennaflokki en knapi hennar var Hafþór Hreiðar Birgisson.
Ómur frá Kvistum, Trymbill frá Stóra-Hofi og Álfur frá Selfossi eru næstir í röðinni allir með 3 afkvæmi.
Til gamans má geta að Lygna frá Stangarholti átti tvo fulltrúa í úrslitum á Íslandsmóti, List frá Þúfum (9.sæti í fjórgangi) og Blundur frá Þúfum (4.sæti í slaktaumatölti). Knapi á þeim báðum var Mette Moe Mannseth.
| Stóðhestur | Fjöldi afkvæma | |
| Spuni frá Vesturkoti | 6 | 3 Íslandsmeistarar |
| Arður frá Brautarholti | 5 | 2 Íslandsmeistari |
| Óskasteinn frá Íbishóli | 4 | 1 Íslandsmeistari |
| Ómur frá Kvistum | 3 | |
| Trymbill frá Stóra-Ási | 3 | |
| Ómur frá Kvistum | 3 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH