Íslandsmeistarar í 250 m. skeiði
Páll Bragi Hólmarsson og Snjall frá Austurkoti Íslandsmeistarar í 250 m. skeiði Mynd: Ásta Björk - Björk media
Seinni umferð í 250m. og 150 m. skeiðinu fór fram fyrir hádegi í dag á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna.
Þeir Páll Bragi Hólmarsson og Snjall frá Austurkoti fóru 250 metrana á besta tímanum eða 22,35 sek. Einu sekúndubroti hægar voru þeir Árni Björn Pálsson og Þokki frá Varmalandi, tíminn 22,36 sek. Hannes Smidesang og Vinátta frá Árgerði enduðu í þriðja sæti með tímann 22,42 sek.

Sara Dís Snorradóttir Íslandsmeistari í 250 m. skeiði í ungmennaflokki Mynd: Gunnhildur Ýrr
Í ungmennaflokki eru þau Íslandsmeistarar Sara Dís Snorradóttir og Djarfur frá Litla-Hofi en þau fóru á tímanum 22,75 sek.
Hægt er að fylgjast með mótinu í beinni á EiðfaxaTV.
Skeið 250m P1
Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Páll Bragi Hólmarsson Snjall frá Austurkoti 22,35
2 Árni Björn Pálsson Þokki frá Varmalandi 22,36
3 Hanne Oustad Smidesang Vinátta frá Árgerði 22,42
4 Daniel Gunnarsson Drottning frá Þóroddsstöðum 22,45
5 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk 22,73
6 Sigursteinn Sumarliðason Liðsauki frá Áskoti 22,76
7 Sigurbjörn Bárðarson Kleópatra frá Litla-Dal 24,12
8-11 Daniel Gunnarsson Sigur frá Bessastöðum 0,00
8-11 Konráð Valur Sveinsson Kvistur frá Kommu 0,00
8-11 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 0,00
8-11 Gústaf Ásgeir Hinriksson Piltur frá Sturlureykjum 2 0,00
Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
Sara Dís Snorradóttir Djarfur frá Litla-Hofi 22,75
Íslandsmeistarar í 250 m. skeiði
Tinni slær heimsmet