Íslandsmet í 250 metra skeiði staðfest-

  • 14. nóvember 2011
  • Fréttir
Íslandsmet í 250 metra skeiði staðfest-

Á Íslandsmóti fullorðinna á Selfossi í sumar fóru þeir félagar Elvar Einarsson og Kóngur frá Lækjamóti 250 metrana í skeiðinu undir þágildandi Íslandsmeti.

 
Sótt var um tímann, 21,89 sek. sem nýtt Íslandsmet og hafa nú keppnisnefnd og stjórn LH samþykkt metið, sem sett var við löglegar aðstæður á Selfossi í sumar. 
 
Elvar og Kóngu slóu þar með met Sigurbjörns Bárðarsonar og Flosa frá Keldurdal um tæpa sekúndu – en fyrra metið var 22,47 sekúnda sem þeir settu á Metamóti Andvara árið 2009.
 
Til hamingju Elvar!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link