Íslandsmót fullorðinna
Íslandsmót fullorðinna verður haldið á Sörlastöðum í Hafnarfirði dagana 23. – 27. júlí á næsta ári. Sörlamenn halda mótið, sem er án efa hápunktur íþróttakeppninnar hvert ár.
Mótið er WR mót og keppt verður í öllum greinum í efsta flokki íþróttakeppninnar, þ.e. meistaraflokki:
F1, V1, PP1, P1, P2, P3, T1, T2.
Það verður gaman að sækja Hafnfirðinga heim næsta sumar, enda er víst búið að semja við veðurguðina og allt.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing