Íslandsmót í hestaíþróttum 2026 verður hjá Sörla í Hafnarfirði
Íslandsmót ungmenna og fullorðinna verður haldið á félagssvæði Hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði dagana 16. til 20. júní 2026.
Vakin er athygli á því að mótið mun byrja þann 16. júní, degi fyrr en áætlað var. Mótslok verða laugardaginn 20. júní, degi fyrr en áætlað var.
Hestamenn eru hvattir til að taka þessa daga frá. Kjörið að koma í Hafnarfjörð og fylgjast með keppni okkar fremstu knapa og hesta, njóta góðra veitinga inni eða úti eftir því sem aðstæður leyfa. Drög að dagskrá verða auglýst innan tíðar.
Keppendum eru minntir á að frestur til að vinna sér inn rétt til þátttöku rennur út þann 8. júní n.k.
Að venju verður keppt í í eftirfarandi greinum á mótinu:
Tölt (T1)Slaktaumatölt (T2)Fjórgangur (V1)Fimmgangur (F1)Gæðingaskeið (PP1)Flugskeið 100 m (P2)Kappreiðaskeið 250m (P1)Kappreiðaskeið 150m (P3)
Auk þessa verða krýndir samanlagðir sigurvegarar í fjór- og fimmgangsgreinum.
Hestamannafélagið Sörli hlakkar til að taka á móti keppendum og áhorfendum á mótsvæði félagsins og mun kappkosta að gera Íslandsmótið að góðum og eftirminnilegum viðburði fyrir hestamenn.
Hestamannafélagið Sörli
Íslandsmót í hestaíþróttum 2026 verður hjá Sörla í Hafnarfirði
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“