Íslandsmót – Ræðst í kvöld hverjir sigra í kappreiðaskeiði
Konráð og Kjarkur fóru hraðast í 250 metra skeiði í fyrri umferð ljósmynd/eiðfaxi
Í gærkvöldi fór fram keppni í fyrstu tveimur sprettum í 250 og 150 metra kappreiðaskeiði. Hvöss sunnanáttin var beint í fangið á keppendum sem orsakaði það að ekki betri tímar náðust. Í kvöld verður keppt í seinni tveimur sprettum og ræðst þá hverjir standa uppi sem Íslandsmeistarar í greininni. Veðurspáin fyrir kvöldið lítur vel út því það spáir 15 stiga hita og vindi að vestan.
Að lokinni fyrri umferð er það Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu sem leiða í 250 metra skeiði á tímanum 22,94 sekúndum.
í 150 metra skeiði fullorðinna er Þórarinn Ragnarsson á Bínu frá Vatnsholti með besta tímann 14,80 og í ungmennaflokki er það Glódís Rún Sigurðardóttir á Blikku frá Þóroddsstöðum sem hraðast fór á 14,94 sekúndum.
250 metra skeið
| Sæti | Keppandi | Hross | Betri sprettur |
| 1 | Konráð Valur Sveinsson | Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II | 22,94 |
| 2 | Benjamín Sandur Ingólfsson | Fáfnir frá Efri-Rauðalæk | 23,62 |
| 3 | Sigursteinn Sumarliðason | Krókus frá Dalbæ | 23,76 |
| 4 | Erlendur Ari Óskarsson | Dama frá Hekluflötum | 23,86 |
| 5 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Rangá frá Torfunesi | 24,11 |
| 6 | Páll Bragi Hólmarsson | Vörður frá Hafnarfirði | 24,33 |
| 7 | Viðar Ingólfsson | Ópall frá Miðási | 24,76 |
| 8 | Svavar Örn Hreiðarsson | Surtsey frá Fornusöndum | 24,93 |
| 9-11 | Daníel Gunnarsson | Eining frá Einhamri 2 | 0,00 |
| 9-11 | Ingibergur Árnason | Sólveig frá Kirkjubæ | 0,00 |
| 9-11 | Jóhanna Margrét Snorradóttir | Andri frá Lynghaga | 0,00 |
150 metra skeið
| Sæti | Keppandi | Hross | Betri sprettur | |
| 1 | Glódís Rún Sigurðardóttir | Blikka frá Þóroddsstöðum | 14,94 | Ungmenni |
| 1 | Þórarinn Ragnarsson | Bína frá Vatnsholti | 14,80 | |
| 2 | Árni Björn Pálsson | Seiður frá Hlíðarbergi | 14,90 | |
| 2 | Þorvaldur Logi Einarsson | Skíma frá Syðra-Langholti 4 | 16,30 | Ungmenni |
| 3 | Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir | Ylfa frá Miðengi | 18,07 | Ungmenni |
| 3 | Sigurður Vignir Matthíasson | Léttir frá Eiríksstöðum | 15,07 | |
| 4 | Arnar Máni Sigurjónsson | Púki frá Lækjarbotnum | 0,00 | Ungmenni |
| 4 | Sigurbjörn Bárðarson | Vökull frá Tunguhálsi II | 15,12 | |
| 5 | Ívar Örn Guðjónsson | Funi frá Hofi | 15,32 | Ungmenni |
| 6 | Ingibergur Árnason | Flótti frá Meiri-Tungu 1 | 15,89 | |
| 7 | Guðlaug Jóna Matthíasdóttir | Auðna frá Hlíðarfæti | 16,49 | |
| 8-11 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | Sigurrós frá Gauksmýri | 0,00 | |
| 8-11 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Sjóður frá Þóreyjarnúpi | 0,00 | |
| 8-11 | Hans Þór Hilmarsson | Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði | 0,00 | |
| 8-11 | Þórarinn Eymundsson | Gullbrá frá Lóni | 0,00 | |
150 metra skeið
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH