„Íslendingar verða í topp þremur í báðum greinum“

  • 4. ágúst 2023
  • Fréttir
Spáð í spilin fyrir Heimsmeistaramót

Nú styttist í Heimsmeistaramót Íslenska hestsins í Hollandi en nokkrir dagar eru til stefnu. Af því tilefni fékk Eiðfaxi nokkra hestamenn til þess að spá í spilin með sér um hvaða knapi og hestur færu með sigur af hólmi í hverri grein.

Spámaður dagsins er Nicki Pfau.

 

Tölt T1
Jóhanna Margrét og Bárður, klárt mál. Geggjað par. Viðar og Þór enda í topp þremur.

Tölt T2
Slakataumin tekur klárlega Christina Lund og Lukku-Blesi, þau eru eitt af mínum uppáhalds pörunum.

Fjórgangur V1
Ef að Frauke Schenzel velur að fara með Jódís frá Kronshof þá verða þær heimsmeistar. – Jóhanna Margrét og Bárður og Christina Lund og Lukku-Blesi verða í A úrslitum í fjórgangi. Þetta eru mikil uppáhalds pör hjá mér.

Fimmgangur F1
Sara Sigurbjörnsdóttir tekur þetta á Flóka. Lisa Schürger og Jón Stenild verða líka í toppbaráttunni.

Gæðingaskeið PP1
Klárt mál, Elvar Þormarsson og Fjalladís frá Fornusöndum.

250m skeið – 100 m. skeið
Það getur svo mikið gerst í þessum kappreiðum. Íslendingar verða í topp þremur í báðum greinum.

Samanlagður fjórgangs
Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi alveg 100%

Samanlagður fimmgangs
Ég veðja á Þorgeir og Goðastein.

 

Ungmenni:

Tölt T1
Ég veðja á Herdísi Björk og Kvarða frá Pulu og Jón Ársæll og Frár verða í A-úrslitun

Tölt T2
Hér segji ég pass

Fjórgangur V1
Jón Ársæll Bergmann og Frár frá Sandhóli. Geggjað par og eru búnir að vera gera frábæra hluti. Þeir verða líka í A-úrslitum í T1

Fimmgangur F1
Glódís mun standa sig og mastera þetta. Hef fulla trú á þessu pari.

Skeiðið
Það snýst svo mikið um heppni. Ég ætla ekki að segja hver verður efstur en klárlega íslenska stálið í topp þremur.

Gæðingaskeið PP1
Benedikt Ólafsson og Leira Björk frá Naustum. Það hlýtur bara að vera.

Samanlagður fjórgangssigurvegari
Ég veðja á Jón Ársæl og Frár

 

Hlakkar mjög mikið til að sjá Ísland á mótinu. Finnst þetta gríðarlega sterkt lið og vel valið. Við tökum fullt af gull medalíum heim.

Áfram Ísland 🇮🇸

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link