Íslenskar stangir
„Fræðslukvöld Hólanema á Sauðárkróki
Þema kvöldsins er Íslenskar stangir
Fimmtudagskvöldið 14. febrúar ætla reiðkennaraefni Hólaskóla þær Bergrún Ingólfsdóttir, Katharina Teschler og Pernille Möller að vera með fræðslukvöld. Þema kvöldsins verða íslenskar stangir og hvernig hægt er að nota þær við þjálfun.
Kvöldið byrjar á fyrirlestri í Tjarnarbæ og að honum loknum verður haldin sýnikennsla í Svaðastaðahölllinni.
Fræðslukvöldið byrjar kl. 20:00 í Tjarnarbæ, aðgangseyrir er 500 kr. (ekki er tekið við kortum).
Hlökkum til að sjá sem flesta,“ segir í tilkynningu frá reiðkennaraefnum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH