Íslenski hestaheimurinn stækkar-

  • 23. nóvember 2011
  • Fréttir
Íslenski hestaheimurinn stækkar-

Alþjóðasamtök íslenska hestsins, FEIF, hafa aldrei verið stærri en nú. Aðildarlöndum fjölgar, hestamannafélögum líka og hrossin – þau eru 243.815 talsins í 19 aðildarlöndum samkvæmt tölum samtakana.

Hrossin eru flest á Íslandi, í Þýskalandi, Danmörku og Svíþjóð. Talið er að um 80.000 íslensk hross séu hér á landi og reiknað er með að þeim hafi fjölgað um 5000 á einu ári eða um 6%. Um 65.000 hross eru talin vera í Þýskalandi, og rúm 30.000 í Danmörku og Svíþjóð og hefur þeim lítilega fjölgað undanfarin ár.

Hlutfallslega fjölgar þeim mest í Austurríki, Kanada og Nýja-Sjálandi, eða um 12% í hverju landi en samkvæmt tölunum á stofninn aðeins undir höggi að sækja á Ítalíu – hefur fækkað um 5 hross.

Alls hafa 14.880 skráð folöld fæðst á árinu í aðildarlöndunum, langflest á Íslandi eða 7.363 hross. Um 2.600 folöld litu í heiminn í Þýskalandi, 2.162 í Danmörku og 1.287 í Svíþjóð.

Einnig kemur þar fram að 610 stóðhestar hafi komið til kynbótadóms á árinu og 1.769 hryssur. Í ljósi hestasóttar er fjöldi hrossa töluvert hærri en í fyrra en þónokkuð lægri en árið 2009. Þá komu 1900 hryssur og 879 stóðhestar fyrir dóm.

Fleiri athyglisverðar tölur og útreikninga má nálgast í hér á gagnagrunni alþjóðasamtakanna, s.s. fjölda skráðra stóðhesta aftur í tímann, fjölda hestamannafélaga og móta.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link