Íslenskir hestar til Grænlands

  • 28. júlí 2020
  • Fréttir

Hrossinn virtust hlakka til ferðarinnar mynd: Kristbjörg Eyvindsdóttir

Á facebook síðu Kristbjargar Eyvindsdóttur er skemmtileg færsla þar sem sjá má þegar íslenskir hestar eru ferðbúnir til Grænlands.  En hún og maður hennar, Gunnar Arnarson, hafa rekið útflutningsfyrirtæki frá árinu 1986.

Samkvæmt Worldfeng eru 40 íslensk hross skráð í Grænlandi en líklegt hlutverk þeirra eru sem reiðhestar í hestaleigur eða til smalamennskna.

Vel fór um hrossinn í rúmgóðum stíum mynd: Kristbjörg Eyvindsdóttir

Kristbjörg sagði í samtali við Eiðfaxa að þau hafi af og til flutt hross til Grænlands í gegnum tíðina. Þá má lesa út úr Facebook færslunni að yfirleitt fari hross sjóleiðina til Grænlands en einu sinni hafi verið flogið með þau.

Í þetta skiptið fóru þau sjóleiðis og fór vel um hrossinn með nægt hey til ferðarinnar og mikið pláss í stórum stíum.

Hér fyrir neðan má sjá æðrulausan reiðhest, líklega íslenskan, fluttna um á mótorbáti.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link